Það hlýtur að vera frábært að eiga nokkrar sortir af berjarunnum. Ég þarf endilega að koma mér upp berjagarði í sveitinni. Eru stikilsberjarunnar erfiðir í ræktun og smakkast berin vel? Ég á nokkra liltla rifsrunna í sveitinni en ég er ekki nógu dugleg að eyða grasi frá þeim, og hef ekki ennþá fengið uppskeru.
Stikilsberjarunnarnir eru alls ekki erfiðir í ræktun,þeir gefa hinnsvegar góða uppskeru,þeir voru mjög gjöfulir í ár. Berin stór og safarík, komust næst því að vera einns og smá Vínber,semsagt vel hægt að svindla smá í kreppunni og nota þau með ostunum í stað Vínberja sem voru á tímabili ekki kaupandi vegna óhóflega verðsinns á þeim. Hér fá stikilsberjarunnarnir sömu meðferð og rifsberjarunnarnir,ásamt sólberjarunnunum. Þetta stendur allt hlið við hlið,fær kannski lífrænan áburð í fyrstu,en sér að mestu leiti um sig sjálft,
eftilvill klyppt, einstökusinnum.