Þessi planta heitir krossmaðra. Hún er algeng um allt suðvesturland. Hún hefur 4 laufblöð í hverjum blaðkransi. Önnur planta lík þessari er hvítmaðra. Hún er heldur minni og hefur fleiri laufblöð í kransi, held 7-8. Þarna vex líka gulmaðra sem er mjög svipuð nema hún er gul. Síðan landið var friðað fyrir beit fyrir 10 árum hefur þessari jurt fjölgað heil ósköp. Og ilmurinn er yndislegur.