Hér er önnur mynd af kryddjurtum sem ég setti í potta um helgina. Ég keypti eina basiliku og skipti henni í 10 potta - hér eru 7 þeirra. Ef við gefum plöntunni nægt vaxtarými þá verðlaunar hún okkur eftir því. Hugsanlega á ég eftir að umpotta þessum plöntum 2-3sinnum í sumar. Ég ætla að send inn myndir af þessum plöntum aftur e/nokkrar vikur. Í haust þá fer svo afgangurinn í pestó