Hunangsfluga (Bombus sp.)

Ég veit ekki hvaða gerð þetta er.

Af vísindavefnum:
Býflugur (Apis mellifera) og hunangsflugur (Bombus sp.) eru ættkvíslir í býflugnaættinni (Apidae). Þar sem býflugur lifa ekki villtar á hér á landi má gera ráð fyrir að í mörgum tilfellum eigi fólk í rauninni við hunangsflugur þegar það spyr Vísindavefinn um býflugur.

Á Íslandi eru 3 tegundir hunangsflugna, móhumla (Bombus jonellus), sem sennilega hefur verið hér frá ísaldarlokum, húshumla (B. lucorum) og garðhumla (B. hortorum).