Vel nýttar kryddjurtir
Ég fór á svo frábært námskeið um kryddjurtir og matjurtaræktun um daginn. Þar var mér t.d. kennt að ef ég kaupi kryddjurtir í potti þá á að taka þær í sundur og umpotta í margar potta. Þetta vissi ég ekki áður og hér tók ég aðeins af steinseljunni (til vinstri) og koriander (neðst til hægri) og setti í pott á pallinum sem ég er með graslaukinn í. Tilbúið í salatið - og við hendina. Restin fer svo út í garð. Eins og sést þá settum við takkadúk innan í kerið til að halda blautri moldinni frá timbrinu og í þeirri von að það eldist betur.
|
Mynd upplýsingar
Dags: Mán 18 maí, 09 Fjöldi skoðana: 3,125 Stærðir: 1024 x 811 Leitarorð: vel nttar kryddjurtir Sendandi: Ugla Gestir Skráður: maí 2009 Innlegg: 46
|
|
|