Þetta eru laxaber: Rubus spectabilis - frá Alaska. Yfirleitt leitt illgresi og þyrnigerði í gömlum görðum og skilar þar engum berjum - en hér er munur á. Skógurinn skapar skilyrðin - laxaberin þurfa að fá að skríða um í skógarbotni. Verða þá strjálli, blómgast, bera aldin og fuglar sá þeim út. Ljúffeng ber annars! - HH