Í Múlakoti í Fljótshlíð vex mikill skógur. Fyrstu alaskaaspirnar voru gróðursettar árið 1944. Trén voru reyndar orðin 11 metra há þegar vorhretið skall á 1963 og kólu alveg niður, en náðu sér aftur á strik með frábærum árangri og eru þau nú um eða yfir 25m há.




