Þó að garðskálinn væri ævintýri líkastur þá var garðurinn í kringum húsið engu síðri. Hér má sjá snilldarlega hlaðinn vegg þar sem laukum og steinaplöntum hefur verið plantað af mikilli natni. Upp á milli veggs og húss liggur spíta sem skriðul planta læðist upp eftir. Góð hugmynd þar.